![]() |
Opnunartími | |||
| Hole in One | Golfverslun | mán - fös | | | 10:00 - 18:00 | |
| Bæjarlind 14 | 201 Kópavogi | lau | | | 10:00 - 16:00 | |
| Sími: 577 40 40 |
Jóla opnunartími |
|||





Við mælum hvort kylfurnar þínar henti þér, stífleiki á skafti , þyngd á skafti og hvort sveigjan í skaftinu henti þér. Einnig mælum við lengd á kylfu, sverleiki á gripum, sveifluvigt (swingweight), hvort gráður séu réttar á kylfuhaus og hvort lega sé rétt miðað við þína sveiflu.
Við notum Swing DNA frá Mizuno til þess að finna út hvaða skaft hentar kylfingnum best (nánari upplýsingar á heimasíðu Mizuno ). Með því að slá þrjú högg með sérstakri járnkylfu sem fylgir DNA kerfinu þá fáum við upplýsingar um sköft sem koma til greina fyrir viðkomandi kylfing, t.d. þyngd á sköftum, stífleika, hvar sveigjan á að vera í skaftinu og fleira. Þegar búið er að finna út hvaða skaft hentar þá skoðum við hvaða kylfuhausar passa best eða hvaða haus kylfinginn langar í. Eftir að skaftið hefur verið mælt og haus ákveðinn þá mælum við lengd á skafti, legu á kylfuhaus og sverleika á gripum.

Það sem hafa verður í huga þegar keyptur er driver er sveifluhraði, hæð boltans af kylfuhausnum og bakspuni boltans. Þessar tölur verða allar að vinna rétt saman svo kylfingurinn fái sem mest út úr sveiflunni sinni. Til þess að fá þessar upplýsingar notum við Vector Pro Launch Monitor. Upplýsingarnar notum við til þess að mæla með kylfuhaus og skafti sem hentar kylfingnum best.
Mæling kostar 12.000 kr. en ef verslað er kylfur útrrá mælingunni innan 3mánaða er hún frí.
Mælingar eru bókaðar með því að senda tölvupóst á netfangið th@holeinone.is